RUV keyrir um þverbak, handbolti í beinni hefur forgang fyrir stjórnarmyndun þjóðar í kreppu

RUV keyrir um þverbak, handbolti í beinni hefur forgang fyrir stjórnarmyndun þjóðar í kreppu Þjóðin er í bankakreppu, stjórnarkreppu, og greinilega að

Fréttir

RUV keyrir um þverbak, handbolti í beinni hefur forgang fyrir stjórnarmyndun þjóðar í kreppu

Marta B Helgadóttir
Marta B Helgadóttir

Þjóðin er í bankakreppu, stjórnarkreppu, og greinilega að auki í tilvistarkreppu ef það þykir sjálfsagt að bein útsending af handboltaleik hafi allan forgang í dagskrá dagsins. 

Ný ríkisstjórn er að taka við, að vísu einungis til 83ja daga en á þeirri stundu að verkefnalisti nýrrar ríkisstjórnar er kynntur þá er útsending rofin til að hefja sýningu handboltaleiks!!! 

Ekki hefur púðrið verið sparað í fréttatímum síðustu daga til að spekúlera í hvaða einstaklingur muni sitja hvaða ráðherrastól næstu 12 vikurnar.

En þegar kemur að því sem megin máli skiptir - þ e. sjálfum verkefnalista þessarar nýju ríkisstjórnar, þá skyndilega er það handbolti sem öllu máli skiptir fyrir þjóðina að missa nú ekki af. 

Mér er næst að halda að við sem þjóð eigum kreppuna skilið. Forgangsröðun sem þessi er fádæmavitlaus.


Athugasemdir

27.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst