SagaKlass mætir aftur og kyndir undir dansskóm Siglfirðinga

SagaKlass mætir aftur og kyndir undir dansskóm Siglfirðinga Það má búast við bæði stuði og stemningu í Allanum laugardaginn 6. nóvember þegar SagaKlass,

Fréttir

SagaKlass mætir aftur og kyndir undir dansskóm Siglfirðinga

SagaKlass pósar
SagaKlass pósar

Það má búast við bæði stuði og stemningu í Allanum laugardaginn 6. nóvember þegar SagaKlass, ein albesta danshljómsveit landsins, treður þar upp.

 

Því miður er ekki of oft sem SagaKlass gefst ráðrúm til að skreppa út fyrir höfuðborgarsvæðið til að spila segir Cecilía söngvari við Sigló.is um leið og hún skoraði á alla dansfíkla, stuðbolta og aðra til að skunda á staðinn.

Það eru fáar hljómsveitir á klakanum sem kynda jafn vel undir dansskónum og SagaKlass og sjálfsagt mörgum enn í fersku minni hvílíkt ógnarstuð var síðast þegar hljómsveitin kom við á Sigló. Fastlega má reikna með því að sú stemmning verði endurvakin næstkomandi laugardag.


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst