Barmmerki Síldarævintýris
sksiglo.is | Almennt | 22.07.2011 | 18:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 350 | Athugasemdir ( )
Gengið verður í hús í Fjallabyggð nk.
sunnudag (24. júlí) og boðin til sölu barmmerki til styrktar
Síldarævintýrinu í ár. Merkið kostar 1.000.- krónur, og er merkt logoi
hátíðarinnar og 20 ára afmæli hennar, en fyrsta Síldarævintýrið var
haldið árið 1991.
Merkin eru ekki einungis til skrauts, heldur veita þau börnum ókeypis aðgang að töfranámskeiði Einars Mikaels og að Hestasporti á malarvelli. Allir íbúar Fjallabyggðar, bæði Siglfirðingar og Ólafsfirðingar, eru hvattir til að vera merktir bæjarhátíðinni.
Dagskrá hátíðarinnar má kynna sér á www.sildardagar.is

Athugasemdir