Samfylkingarfélög og Framsóknarfélög sameinast

Samfylkingarfélög og Framsóknarfélög sameinast Samfylkingarfélögin á Ólafsfirði og í Siglufirði hafa verið sameinuð í eitt félag, Samfylkingarfélag

Fréttir

Samfylkingarfélög og Framsóknarfélög sameinast

Samfylkingarfélögin á Ólafsfirði og í Siglufirði hafa verið sameinuð í eitt félag, Samfylkingarfélag Fjallabyggðar. Framsóknarmenn hafa einnig tilkynnt um sameiningu félaga sinna í bæjarfélaginu sem tekur til starfa um næstu áramót. Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar árið 2006.

Stjórnir Samfylkingarfélaganna á Ólafsfirði og í Siglufirði hafa jafnframt ákveðið að bjóða fram S-lista við komandi sveitastjórnarkosningar í Fjallabyggð næsta vor.

Á félagsfundi Framsóknarfélaganna í Fjallabyggð í gær voru samþykktar tvær ályktanir. Félögin mótmæla skerðingu á löggæslu í sveitarfélaginu og skora á bæjarráð að fylgja málinu eftir. Þá mótmæla Framsóknarfélögin harðlega áformum ríkisstjórnarinnar að leggja niður embætti Skattstjóra Norðurlands vestra sem staðsett er í bæjarfélaginu. „Félögin skora á fjármálaráðherra að hverfa frá því að fækka frekar opinberum störfum í Fjallabyggð, enda hefur þeim fækkað gríðarlega á undanförnum árum."


Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst