Samfylkingin opnar vefsvæði
Samfylkingin í Fjallabyggð hefur opnað vefsvæði á http://xs.is/fjallabyggd/. Í auglýsingum frá Samfylkingunni í Fjallabyggð hefur gefið að líta ágrip af stefnuskrá framboðsins. Að baki þessum ágripum liggur ítarleg stefnuskrá sem nú hefur verið gerð aðgengileg í heild sinni á vefsvæðinu.
Þar er einnig að finna upplýsingar um frambjóðendur, dagatal sem sýnir dagskrá Samfylkingarinnar fram að kosningum, greinar og fleira.
Á síðunni hvetur Samfylkingin fólk til að skoða þær upplýsingar sem í boði eru og að það aðstoði kjósendur við að gera upp hug sinn hverjum það greiði atkvæði sitt í kosningunum 29. maí næstkomandi.



Athugasemdir