Sáu snjó í fyrsta sinn

Sáu snjó í fyrsta sinn Hópur sjálfboðaliða, sem samanstendur af fólki frá ýmsum þjóðlöndum dvelur nú á Siglufirði. Hópurinn er að sinna ýmsum verkefnum

Fréttir

Sáu snjó í fyrsta sinn

SEEDS (Myndir: Gestur Hansa)
SEEDS (Myndir: Gestur Hansa)
Hópur sjálfboðaliða, sem samanstendur af fólki frá ýmsum þjóðlöndum dvelur nú á Siglufirði. Hópurinn er að sinna ýmsum verkefnum m.a. í tengslum við Síldarævintýrið.



Hópurinn er hér á vegum SEEDS, See beyond borders, sem eru alþjóðleg samtök sem vilja stuðla að auknum skilningi fólks á náttúru og umhverfi og samskiptum ólíkra þjóða og menningar.

Gestur Hansa fór með hópinn í fjallgönguferð um daginn og var hópurinn alsæll með ferðina. Gengin var hin svokallaða Dalaleið og lagt var af stað úr Skarðsdal upp á Eggjarnar og norður Hafnarfjall inn Leirdali.

Margir í þessum fjölþjóðlega hópi voru að sjá snjó í fyrsta skipti þannig að það var mikil upplifun fyrir þau að ganga í þessu stórbrotna landslagi og snerta snjó í fyrsta skipti á ævinni.

Þetta var mikil ævintýraferð hjá hópnum og koma þau til með að geyma þessar minningar frá Siglufirði um alla tíð.



Stórbrotið útsýni yfir bæinn



Falleg gönguleið



Snjórinn vakti mikla athygli hjá hópnum og voru mörg þeirra að sjá og snerta snjó í fyrsta sinn



Gleðin skein úr hverju andliti

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst