Siglfirðingakvöld á Catalínu
Laugardaginn 15 maí n.k. verður sérstakt Siglfirðingakvöld á veitingastaðnum Café Catalínu, þar sem bílskúrsbandið ,,óskírða'' úr heimabyggð kemur fram.
Hljómsveitina skipa Leó Óla, Maggi Guðbrands, Kristbjörn Bjarna, Biggi Inga og gítarsnillingurinn
(utanbæjarmaðurinn) Birgir J. Birgis. Hljómsveitin er búin að æfa og æfa í bílskúrnum sérstaklega fyrir þessa uppákomu, sjón er sögu ríkari.
Tilvalið er að gera kvöldið skemmtilegt og panta mat á Café Catalínu og gera sér glaðan dag, spáin er góð og gaman að hittast í góðra vina hópi.
Siglo.is mun hafa útsendara á svæðinu og fylgjast með á Catalínu en það má segja að þetta sé afmælispartý þar sem Siglufjarðarkaupstaður á afmæli þann 20. maí næstkomandi.



Athugasemdir