Siglfirðingar athugið! - skrifstofan flytur

Siglfirðingar athugið! - skrifstofan flytur Föstudaginn 24. apríl nk. verður skrifstofa stéttarfélaganna á Siglufirði opnuð á nýjum stað, í Eyrargötu 24.

Fréttir

Siglfirðingar athugið! - skrifstofan flytur

Merki Einingar-Iðju
Merki Einingar-Iðju
Föstudaginn 24. apríl nk. verður skrifstofa stéttarfélaganna á Siglufirði opnuð á nýjum stað, í Eyrargötu 24. Af því tilefni verður opið hús á nýju skrifstofunni á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl, á milli kl. 14:00 og 17:00. Allir velkomnir.
Ganga frá Suðurgötu 10

"Við ákváðum að bjóða öllum Siglfirðingum að koma á sjá nýju aðstöðuna og þiggja kaffi og meðlæti. Við ætlum líka að ganga frá Suðurgötunni og yfir á Eyrargötuna rétt fyrir klukkan tvö. Þar munum við flytja myndir af fyrrum leiðtogum siglfirskt launafólks, og reyndar norðlendinga allra, og koma þeim fyrir á nýjum stað þar sem þeir munu vaka yfir starfinu í nýja húsnæðinu. Ég hvet alla til að mæta og ganga með okkur þennan stutta spöl og vona að sem flestir komi og skoði nýja húsnæðið," segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.

 Vegna flutninganna verður skrifstofan á Suðurgötu 10 lokuð á morgun, miðvikudaginn 22. apríl.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst