Siglfirðingur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ

Siglfirðingur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ Herdís Sigurjónsdóttir bíður sig fram í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.  

Fréttir

Siglfirðingur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ

Herdís Sigurjónsdóttir
Herdís Sigurjónsdóttir

Herdís Sigurjónsdóttir bíður sig fram í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.

 

Herdís (dóttir Ásdísar og Budda) er fædd og uppalin á Siglufirði og bjó á Sigló þar til hún hélt í framhaldsskóla. Hún hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 1990 og hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 1998, eða í þrjú kjörtímabil, og er nú formaður bæjarráðs. Hún situr sem formaður samstarfshóps í Mosfellsbæ vegna efnahagsástandsins og hefur setið í fræðslunefnd, fjölskyldunefnd, umhverfisnefnd og almannavarnanefnd. Herdís situr þá einnig sem fulltrúi sambands íslenskra sveitarfélaga í brunamálaráði og skólanefnd brunamálaskólans, hefur unnið að málefnum fatlaðra ungmenna á vegum félagsmálaráðuneytisins og verið í stjórn og fulltrúaráði hjúkrunarheimilisins Eirar frá árinu 2004 þar sem öldrunarmál eru henni hugleikin.

Herdís er með víðtæka menntun og lauk nú síðast meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræðum árið 2009. Fjallaði meistaraverkefni hennar um hlutverk sveitarstjórna á neyðartímum og við endurreisn eftir náttúruhamfarir og önnur samfélagsleg áföll. Herdís er því vel til fallin að takast á þau verkefni sem framundan eru í Íslensku samfélagi.

Sigló.is hvetur gesti síðunnar til að skoða heimasíðu Herdísar á:
http://herdis.blog.is/blog/herdis/entry/1004502/


Athugasemdir

20.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst