Siglfirskt blóð í æðum

Siglfirskt blóð í æðum það fer ekki á milli mála að rithöfundablóð er í mörgum afkomenda brottfluttra Siglfirðinga, og einnig þeirra forfeðra og mæðra sem

Fréttir

Siglfirskt blóð í æðum

það fer ekki á milli mála að rithöfundablóð er í mörgum afkomenda brottfluttra Siglfirðinga, og einnig þeirra forfeðra og mæðra sem dvöldu hér fyrrum daga,

og þeirra sem dvöldu á Siglufirði fram á síðasta dag, sá yngsti til þessa er Ragnar Jónasson sem flestir þekkja.

En nú hefur enn einn með siglfirskt blóð í æðum stigið fram á ritvöllinn og gefið út sína fyrstu bók, og er ákveðinn í að halda áfram á þeim vettvangi.

Það er Stefán Birgir Stefánsson, sonur Huldu Guðbjargar Kristinsdóttur (Dóttir Kristins og Löllu, sem bjuggu á Siglufirði til dauðadags.) Bókin heitir ÚTBURÐUR.
Nánar má lesa um bókina frá tenglinum hér neðar.



Bókin ÚTBURÐUR er blanda af morðgátu í smábæ, hrollvekju og vísindaskáldskap.

Hún segir frá Lísu, ungri konu sem vinnur hjá íslenskri stofnun sem sér um allt það sem ber að halda leyndu. Lísa er send í verkefni til Hulduvíkur, sem er einangraður og falinn smábær við rætur Snæfellsjökuls.


Þar kemst hún fljótt að því að þó hún sé vön ýmsu yfirnáttúrulegu, þá er hún ekki tilbúin fyrir það sem henni bíður…

Aðsent: Texti: SK, og texti af vefsíðunni   http://www.sbs.is/archives/1018  
Þar sem lesa má frekar um bók og höfund.


Athugasemdir

17.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst