Siglósport og Ella Gests

Siglósport og Ella Gests Ég kom við hjá Ellu Gests í Siglósport fyrir stuttu síðan og fékk að smella af nokkrum myndum og að sjálfsögðu spjölluðum við

Fréttir

Siglósport og Ella Gests

Ég kom við hjá Ellu Gests í Siglósport fyrir stuttu síðan og fékk að smella af nokkrum myndum og að sjálfsögðu spjölluðum við heilmikið á meðan ég smellti af myndunum. 

 
Það mætti segja að Ella Gests sé andlit búðarinnar og tekur manni opnum  örmum og er boðin og búin að gera allt sem í hennar valdi stendur fyrir mann þegar maður rambar inn í leit að lóttó-miða, nærfötum, sokkum, skóm, treflum, belti og buxum. Og örugglega miklu meira af alls konar fatakyns, sem er bara alveg virkilega gott efni í.
 
Ég er ósjaldan dreginn þarna inn af kvennþjóðinni minni þegar við spásserum um götur bæjarins og dömunum langar alveg virkilega að skoða eitthvað fallegt fatakyns. Reyndar heyrist nokkuð oft í eldri dóttur minni þegar mig langar bara að fara heim að leggja mig örþreyttur eftir göngutúrinn um allan miðbæinn, "förum þarna og skoðum föt, ha, plís pabbi, gerum það, ha!!".  Og hvað getur maður annað gert en að fara akkúrat þangað inn þegar manni er skipað svona ómótsæðilega fallega fyrir. Ég reyndar held að það sé innbyggt í kvennþjóðina að kíkja í búðir og snerta á öllum mögulegum og ómögulegum hlutum og finna "hvað er virkilega gott í þessu" öllu saman.
 
Ég ætla reyndar að koma með smá hugmynd fyrir til dæmis Sigló-Sport og aðrar búðir sem ekki eru orðnar "karla þróaðar" ef svo mætti kalla. Af hverju hafa ekki fleiri en einni búð sem ég veit um dottið það í hug að gera svona "karla horn"? Þar sé ég fyrir mér að geti verið þægilegur stóll, eða sófi, jafnvel kaffi og Lifandi vísindi eða Sagan öll o.sv.fr. Jafnvel sjónvarp.  Ég fór einusinni í búð úti í Skotlandi með frúnni þar sem voru svona þægindi fyrir örþreytta karlmenn og það þurfti hreinlega að draga okkur út úr búðinni, þvílík voru þægindin og lúxúsinn. Þá voru stúlkurnar örugglega búnar að koma við hverja einustu flík í búðinni, pæla í öllu saman og versla einhvern slatta. Við karlarnir áttum svo notalega stund þarna. Steinþögðum, störðum á hvorn annann, sjónvarpið og vegginn til skiptis og sötruðum kaffi. 
Annað svona dæmi sem ég heyrði af var þannig að eiginmaður kemur með konu sinni í búð einhverstaðar í útlöndum. Að sjálfsögðu fatabúð. Karlræfillinn er svo þreyttur eftir allt búða-rápið að hann sest í sófa sem er í búðinni á meðan frúin skoðar hverja einustu flík og hann steinsofnar. Afgreiðslustúlkurnar voru svo ánægðar með það hvað hann beið þolinmóður eftir frúnni að þegar hann vaknar er hvítvín, kampavín og kavíar á borði beint fyrir framan hann. Þær höfðu aldrei séð svona þolinmóðan mann bíða svona lengi eftir konu sinni. Reyndar var hann ekki þolinmóður, hann var steinsofandi.
En nóg um það.
 
 Siglósport er mjög flott búð með miklu vöruúrvali og alltaf gott að kíkja þar við, jafnvel bara til þess eins að spjalla við Ellu Gests og hinar starsstúlkurnar og finna hvað það er virkilega gott í þessum fötum öllum saman.
 
siglosportElla vildi endilega að ég mundi máta þessa blússu. En hún var ekki til í minni stærð sem betur fer.
 
siglo-sportAllt mögulegt.
 
siglo-sportSkór, úlpur, treflar og ég veit ekki hvað og hvað.
 
siglo-sportÞetta horn þekki ég nú orðið nokkuð vel. Ég er iðulega dreginn í þetta horn þegar dömurnar fara með mig í göngutúr.
 
siglo-sportKjólar, blússur og ýmislegt annað sem er alveg virkilega gott að eiga (segir Ólöf).
 
 

Athugasemdir

02.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst