SiglÓl ehf í föstudagsviðtalinu

SiglÓl ehf í föstudagsviðtalinu SiglÓl ehf er hugarfóstur þriggja stórhuga sem sjá tækifæri til að nýta fiskislóg til að hjálpa nauðstöddum og um leið

Fréttir

SiglÓl ehf í föstudagsviðtalinu

Logo SiglÓl ehf.
Logo SiglÓl ehf.
SiglÓl ehf er hugarfóstur þriggja stórhuga sem sjá tækifæri til að nýta fiskislóg til að hjálpa nauðstöddum og um leið skapa atvinnu hér heima. Þeir buðu til hófs í tilefni opnunar á húsnæðinu. Hermann Einarsson leiðir okkur í gegnum viðtalið.
Neyðarpakki frá Tröllaskaga

Það var í lok síðasta árs um það leiti sem bankahrunið varð að við félagarnir Hermann Einarsson, Baldvin Ingimarsson og Steinar Svavarsson ákváðum að stofna fyrirtækið SiglÓl ehf.



Hugmynd okkar gerir ráð fyrir að nýta fiskislóg til framleiðslu á próteini sem nýtist í framleiðslu á fyrstu hjálpar neyðarpakka á hamfærasvæði.  Þessi pakki á að fullnægja dagsskammti próteins fyrir einstakling. Í neyðarpakkanum verður massi sem verður fyrir komið í mjög geymsluþolið form og pakkað í umhverfisvænar umbúðir. Áframhaldandi þróun verkefnisins fer mikið eftir niðurstöðum rannsókna og vöruþróunar. Vitað er að þekking á framleiðslu sem þessari er allnokkur til í landinu og mun Rannsóknarstofa í hagnýtri örverufræði við Háskólann á Akureyri kortleggja þá þekkingu.



Ekki er hægt að nefna eitt markaðssvæði en Rauði krossinn og UNICEF eru meðal þeirra sem kaupa slíka vöru. Þess má geta að íslenska ríkið er að láta mjög mikla peninga í hjálparstarf og viljum við kynna þessa vöru fyrir stjórnvöldum með það að markmiði að leggja þá líka til framleiðslu á vöru sem full þörf er fyrir og þannig skapa störf og fullnýtingu á hráefni sem var áður hent.Einnig má geta þess að Norðmenn fara þá leið að kaupa vöru af innlendum framleiðenda og gefa svo til þeirra sem þess þurfa. Má segja að þannig skapist hagvöxtur í heimabyggð.



Nýnæmi fellst í því að fullnýta vöru sem er hent í dag. Staðan í dag er sú að búið er að gera leigusamning um húsnæði í eitt ár, keypt hafa verið frystitæki og fleiri tæki sem þarf til framleiðslunnar.Verið er að ganga frá ráðningarsamningum við starfsmenn. Reiknað er með að starfsemin hefjist í næstu viku og verða þá til fjögur störf. Byrjað verður á að flokka fiskislógið og frysta síðan er það selt.
Samhliða verður áfram unnið að vinnslu próteins úr fiskislóginu í samvinnu við Rannsóknarstofa í hagnýtri örverufræði við Háskólann á Akureyri.



Við óskum þeim félögum gæfu og góðsgengis og þökkum kærlega fyrir okkur.






Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst