Siglufjarðar-Seigur

Siglufjarðar-Seigur Mikil vinna er hjá Siglufjarðar-Seig í viðgerðum og nýsmíði á fiskibátum úr plasti. Verið er að lengja Kidda Lár GK-501 um 2,70 metra

Fréttir

Siglufjarðar-Seigur

Mót undirbúin fyrir nýsmíð til Danmerkur
Mót undirbúin fyrir nýsmíð til Danmerkur
Mikil vinna er hjá Siglufjarðar-Seig í viðgerðum og nýsmíði á fiskibátum úr plasti. Verið er að lengja Kidda Lár GK-501 um 2,70 metra og loka gaflinum að aftan sem eykur dekkpláss um 4 metra. Við þessar breytingar fer báturinn úr 15 tonnum í 30 tonn og er eigandi bátsins Sæfell Stykkishólmi.

Síðan er verið að byrja á nýsmíði fyrir Seiglu á Akureyri og fer sá bátur til Danmerkur og eru bundnar miklar vonir við sölu á bátum þangað. Siglufjarðar-Seigur er með óselda nýsmíði hjá sér og er skrokkur og brú tilbúin, það má segja að báturinn sé tæplega fokheldur.

Það er verið að ganga frá strandveiðibát fyrir Gunnar Júlíusson sem er að verða tilbúinn og vinna við þessar framkvæmdir hjá fyrirtækinu 7 manns að staðaldri. Rafmagnsvinnan er í höndum Raffó og sér Sigurbjörn Jóhannsson um hana.



Steypumót



Er í lengingu upp á 2,70 m.



Sami bátur



Óseldur 30% tilbúinn



Fannar tilbúinn eftir lagfæringar



Nýsmíði fyrir Gunnar Júlíusson (strandveiðibátur)



Sami bátur



Sami bátur

Texti og myndir: GJS




Athugasemdir

29.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst