Siglufjarðarkirkja 80 ára
sksiglo.is | Almennt | 28.08.2012 | 12:01 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 432 | Athugasemdir ( )
Í dag eru 80 ár liðin frá vígslu
Siglufjarðarkirkju, 28. ágúst 1932. Þess verður þó ekki formlega minnst
fyrr en á sunnudaginn kemur, 2. september, en þá kl. 14.00 verður
hátíðarguðsþjónusta með þátttöku Agnesar M. Sigurðardóttur biskups
Íslands, Solveigar Láru Guðmundsdóttur biskups á Hólum ásamt fyrrverandi
prestum og núverandi sóknarpresti, tónlistarfólki og fleiri aðilum.
Þetta verður auglýst nánar hér á laugardag.
Þess má geta að von er á árgangi 1932 til Siglufjarðar umrædda helgi, sem eykur enn frekar á gleði og hátíðleika stundarinnar.
Í tilefni þessa afmælis er Systrafélag Siglufjarðarkirkju að hefja sína árlegu merkjasölu. Gengið verður í öll hús á Siglufirði á næstu dögum og merkið boðið til sölu. Allur ágóði rennur til viðhalds og endurbóta á kirkjunni. Vonast félagið til að íbúar bæjarins taki jafn vel á móti Systrafélagskonum eins og verið hefur undanfarin ár.
Merkið kostar litlar 1.000 krónur.

Texti og myndir: Sigurður Ægisson

Athugasemdir