Siglufjörður kemur sterkur inn
Ferðamálastofa lét MMR gera í síðasta mánuði þar sem spurt var um ferðalög Íslendinga á árinu 2011 og ferðaáform þeirra í ár".
"Niðurstöður benda til að álíka margir hafi verið á faraldsfæti innanlands og áður en breytingu má sjá á heimsóknum til einstakra staða. Þá halda utanferðir áfram að færast í aukana.
Siglufjörður kemur sterkur inn
Þegar spurt var um hvaða staði fólk heimsótti í fyrra má sjá að Siglufjörður tekur mikið stökk upp á við. Hlutfallið fer úr 8% árið 2010 í 17,7% 2011. Þá nefna einnig talsvert fleiri Skagafjörð (22,1) en í síðustu könnun.
Á landsvísu er Skagafjörður í fjórða sæti og Siglufjörður í því fimmta yfir þá staði sem flestir heimsóttu í fyrra. Flestir nefna sem fyrr Akureyri (41,8%), þá koma Þingvellir/Geysir/Gullfoss (27,8) og Akranes/Borgarnes (22,6%)".
Frétt frá Ferðamálastofu má lesa hér að neðan.
Nú liggja fyrir niðurstöður úr könnun sem Ferðamálastofa lét MMR gera í síðasta mánuði þar sem spurt var um ferðalög Íslendinga á árinu 2011 og ferðaáform þeirra í ár. Niðurstöður benda til að álíka margir hafi verið á faraldsfæti innanlands og áður en breytingu má sjá á heimsóknum til einstakra staða. Þá halda utanferðir áfram að færast í aukana.
Níu af hverjum tíu ferðuðust innanlands
Tæplega
níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra, sem er
svipað og árin á undan. Tæplega tveir þriðju aðspurðra ferðuðust til
útlanda á árinu 2011, eða 63,3%, en var 56,3% í sambærilegri könnun
fyrir ári síðan. Ekki er að greina miklar breytingar í ferðaáformum
fólks fyrir nýbyrjað ár en langflestir hafa ferðalög af einhverju tagi á
stefnuskránni.
Hvenær var ferðast innanlands...
Júlí var sem
fyrr langvinsælasti mánuðurinn til ferðalaga innanlands en 72,0%
landsmanna nýttu þann mánuð til ferðalaga. Fast á eftir fylgja ferðalög
landsmanna í ágústmánuði (63,2%) og júní (52,4%). Á vor- og
haustmánuðum, þ.e. í apríl, maí, september og október, ferðaðist um
fimmtungur í hverjum mánuði en mun minna var ferðast aðra mánuði ársins.
...og hversu lengi var dvalið?
Meðaldvalarlengd
á ferðalögum innanlands var 14,0 nætur árið 2011. Um er að ræða ívið
styttri dvalarlengd og árið 2010 en þá var hún 14,9 nætur. Stærsti
hópurinn dvaldi í tvær vikur, eða einn af hverjum fjórum. Litlu færri
dvöldu í 7-10 nætur en tæp 18% dvöldu í 4-6 nætur og svipað hlutfall í
þrjár vikur eða lengur.
Dregur úr ferðum með tjald og ferðavagna
Tjald,
fellihýsi eða húsbíll var algengasti gistimátinn, eða í 44,6% tilvika.
Þó dregur nokkuð hlutfallslega úr slíkri gistingu þar sem 52,2% nefndu
þennan kost fyrir tveimur árum. Gisting hjá vinum og ættingjum er sem
fyrr vinsæl, en tæp 44% nefna þann kost nú. Þá kemur orlofshús eða íbúð í
eigu félagasamtaka með 38,6% og sumarhús eða íbúð í einkaeign (37,5%).
Hvaða afþreyingu greiða landsmenn fyrir?
Sund og
jarðböð eru sú afþreying sem flestir landsmenn greiddu fyrir á
ferðalögum árið 2011 eða tveir landsmenn af hverjum þremur. Margir
(36,3%) borguðu sig inn á söfn eða sýningar, leikhús eða tónleika
(17,8%), fyrir veiði (17,7%), golf (12,7%) eða bátsferð (10,2%).
Hvaða landsvæði eru heimsótt?
Norðurland
og Suðurland voru líkt og í undanförnum könnunum þeir landshlutar sem
flestir landsmenn heimsóttu á árinu 2011 eða tæplega þrír af hverjum
fimm. Þó nefna heldur færri Norðurland en í síðustu könnun og sama má
segja um Austurland en þangað ferðaðist einn af hverjum fimm í fyrra í
stað eins af hverjum fjórum 2010. Fleiri nefna Höfuðborgarsvæðið en í
síðustu könnun.
Siglufjörður kemur sterkur inn
Þegar spurt var um
hvaða staði fólk heimsótti í fyrra má sjá að Siglufjörður tekur mikið
stökk upp á við. Hlutfallið fer úr 8% árið 2010 í 17,7% 2011. Þá nefna
einnig talsvert fleiri Skagafjörð (22,1) en í síðustu könnun. Á
landsvísu er Skagafjörður í fjórða sæti og Siglufjörður í því fimmta
yfir þá staði sem flestir heimsóttu í fyrra. Flestir nefna sem fyrr
Akureyri (41,8%), þá koma Þingvellir/Geysir/Gullfoss (27,8) og
Akranes/Borgarnes (22,6%).
Staðir innan einstakra landshluta
Af þeim stöðum
eða svæðum sem spurt var um innan Suðurlandsins heimsóttu flestir
Þingvelli/Geysi eða Gullfoss (27,8%), Vestmannaeyjar (12,1%) og Vík
(12,1%), innan Norðurlandsins heimsóttu flestir Akureyri (41,8%),
Skagafjörð (22,1%) og Siglufjörð (17,7%) og innan Vesturlandsins
Akranes/Borgarnes (22,6%), Húsafell/Reykholt (13,5%) og Stykkishólm
(13,4%).
Þeir
sem heimsóttu Austurlandið heimsóttu flestir Egilsstaði/Hallormsstað
(14,5%) og Fjarðabyggð (9,4%) af þeim stöðum og svæðum sem spurt var um,
þeir sem heimsóttu Vestfirðina lögðu flestir leið sína á Ísafjörð
(14,0%) og inn á Hólmavík eða Strandir (8,9%) og þeir sem heimsóttu
Reykjanesið, Reykjanesbæ (7,6%) og Grindavík (4,1%). Af þeim sem fóru
inn á Hálendið heimsóttu m.a. 5,0% Landmannalaugar og 3,8% Kjöl þ.m.t.
Hveravelli.
Dagsferðir vinsælar
Þrír af hverjum fjórum
svarendum höfðu farið í dagsferð á árinu 2011 en dagsferð var skilgreind
sem skemmtiferð, fimm klukkkustunda löng eða lengri út fyrir heimabyggð
svarenda án þess að gist væri yfir nótt. Ríflega helmingur hafði farið í
dagsferð á Suðurlandið, tæplega tveir af hverjum fimm á Vesturlandið,
ríflega fjórðungur á Reykjanesið, fjórðungur á Norðurlandið, ríflega
fimmtungur á höfuðborgarsvæðið, um einn af hverjum tíu á Austurlandið og
tæplega einn af hverjum tíu á Vestfirði.
Takmörkuð gæðavitund hjá Íslendingum á ferð um eigið land
Nú
fer að líða að því að tekið verið í notkun nýtt gæðakerfi sem
Ferðamálastofa hefur þróað að erlendri fyrirmynd og hefur hlotið nafnið
VAKINN. Það þótti því tilvalið að varpa þeirri spurningu til svarenda í
þessari könnun hvort það hefði áhrif á á val á ferðaþjónustufyrirtæki
þegar ferðast væri innanlands að það hefði fengið viðurkennd gæðaviðmið.
Ríflega fjórðungur svarenda sagði að það hefði mjög mikil eða frekar
mikil áhrif á val á ferðaþjónustufyrirtæki, þriðjungur var hlutlaus en
tveir af hverjum fjórum sögðu að það hefði frekar lítil eða mjög lítil
áhrif.
Ferðaáform landans
Níu
af hverjum tíu svarendum hafa áform um ferðalög á árinu 2012. Þannig
segjast 56,5% ætla að fara í sumarbústaðaferð innanlands, 50,4% að
heimsækja vini eða ættingja, 34,2% borgarferð erlendis, 31,5% í ferð
innanlands með vinahópi eða klúbbfélögum, 27,9% borgar- eða bæjarferð
innanlands og 25,3% útivistarferð innanlands þ.m.t. gönguferðir, jeppa-
eða snjósleðaferðir. 23,8% ætla að elta veðrið þ.e. ferðast þangað sem
veðrið er best á Íslandi, 22,5% ætla í sólarlandsferð og 20,7% í annars
konar ferð erlendis en hér er upptalið. Annars konar ferðir voru nefndar
í mun færri tilfellum.
Um könnunina
Könnunin var unnin sem net- og
símakönnun 12.-17. janúar. Spurningar fyrir aldurshópinn 18-67 ára voru
lagðar fyrir í spurningavagni MMR og var svarað á Internetinu. Könnunin
náði til 1400 manna panel úrtaks, kvótaskiptu til samræmis við
lýðfræðilega samsetningu þjóðskrár og var svarhlutfall 60,1%.
Aldurshópurinn 68-80 ára var spurður símleiðis, byggt var á 210 manna
úrtaki og var svarhlutfall 54,8%. Framkvæmd og úrvinnsla voru í höndum
MMR.
Myndir:
Mynd frá Siglufirði af nordurland.is. Aðrar myndir Ragnar Th. Sigurðsson, arctic-images.com
Athugasemdir