Siglufjörður er dásamlegur bær
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 26.06.2009 | 11:00 | | Lestrar 582 | Athugasemdir ( )
Ferðamennirnir streyma til Siglufjarðar og í morgun var nokkuð um tjaldvagna og tjöld á tjaldsvæðinu í miðbænum.
Blaðamaður Sksiglo.is talaði við Henny & Henk van de Koppel frá Hollandi. Þau komu gagngert til Siglufjarðar til að skoða Síldarminjasafnið. Það er greinilegt að hróður safnsins berst víða, en þau fengu ábendingu um að skoða safnið hjá öðrum ferðamönnum sem voru yfir sig hrifnir. Í ferðabæklingi hins virta útgefanda Lonely Planet er Siglufirði lýst sem dásamlegum bæ eins og lesa má í eftirfarandi grein sem birtist árið 1999.
"Siglufjördur (population 1800), which may well be Iceland's loveliest town, enjoys a dramatic setting beside a small fjord at the northern tip of Tröllaskagi. It's the sort of town that in any other country would probably develop into a trendy seaside art colony. The historic architecture, the colourful rooftops of upper town, the harbour and the inspiring backdrop are all delightful, and may call to mind an idyllic Hollywood fishing village. The modern sculpture near the shore - a gummi boat confronting monster waves - provides a feel for Siglufjördur's rugged past."
"Iceland, Greenland and Faroe Islands", publisher: Lonely Planet.
Einnig ætluðu skötuhjúin að skoða kirkjuna en komu þar að luktum dyrum. Henny & Henk gistu eina nótt á tjaldsvæðinu og þau ætla bara að láta ráðast hvert þau halda næst.

Athugasemdir