Siglunesið við Siglufjörð
sksiglo.is | Almennt | 12.08.2011 | 19:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 619 | Athugasemdir ( )
Undanfarin ár hefur brimið verið að nálgast húsin sem standa á fjörukambinum á Siglunesi. Það eru nokkur ár síðan eigendur af þessum húsum fóru framm á það við bæjaryfirvöld í Fjallabyggð og Siglingamálastofnun að grjóti yrði raðað á kambinn (sjóvörnum) framan við húsin.
Ákveðið var að opna grjótnámu á nesinu og þaðan flutt grjót til framkvæmdanna. En óánægja kom upp meðal landeigenda sem voru mótfallnir því að vegur yrði gerður til þessara framkvæmda.
Skipulagsnefnd fór í vettvangsskoðun á Siglunes 3. september 2010. Nefndin tekur undir framkomnar athugasemdir vegna opnunar námu á Siglunesi og hefur samþykkt að fella námuna út af auglýstri tillögu að aðalskipulagi. Nefndin telur hins vegar að áfram skuli gert ráð fyrir sjóvörnum á Siglunesi í samræmi við tillögur Siglingastofnunar.

Til gamans: Mynd af Grímsey
Texti og myndir: GJS

Athugasemdir