Sigurður Pálsson á Ljóðasetri Íslands
Innsend frétt.
Formleg sumaropnun Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði verður þriðjudaginn 2. júlí og fyrsta gestaskáld sumarsins er Sigurður Pálsson rithöfundur.
Sigurður les úr verkum sínum kl. 17.00 opnunardaginn og ræðir við gesti um verk sín. Út hafa komið fimmtán ljóðabækur eftir Sigurð, þrjár skáldsögur og tvö endurminningaverk auk þess sem ellefu leikverk hans hafa verið sviðsett. Sigurður hefur þýtt um tuttugu og fimm verk úr frönsku og einnig tvö leikrit eftir Arthur Miller og ljóð hans hafa verið þýdd á tuttugu tungumál.
Ljóðasetrið verður opið alla daga til 15. ágúst kl. 14.00 – 17.30 og alla daga kl. 16.00 er boðið upp á lifandi viðburði. Fyrstu vikuna munu auk ,Sigurðar Pálssonar, koma fram Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson ljóðskáld og tónlistarmaður, Elfar Logi Hannesson leikari og Þórarinn Hannesson bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2013.
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu setursins www.123.is/ljodasetur
Athugasemdir