Sigurvin togar í Lágey
http://www.640.is/news/bjorgunaraf_rk/ | Almennt | 29.03.2010 | 14:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 394 | Athugasemdir ( )
Ekki hefur farið fram hjá landsmönnum að báturinn Lágey strandaði við Héðinshöfða á Skjálfanda í fyrradag. Hafþór Hreiðarsson sendi Siglo.is þessa mynd af Sigurvin þar sem hann er að toga í Lágey á strandstað.
Þrátt fyrir að ekki hafi tekist til við að toga Lágey lausa er báturinn nú laus af strandstað en sú óvenjulega leið var farinn að losa bátinn „landleiðina“ og var til þess fenginn sérstakur hertrukkur.
Athugasemdir