Síldarævintýri 2013
Nú stendur undirbúningur fyrir Síldardaga og Síldarævintýri sem hæst, í undirbúningsnefnd þetta árið sitja líkt og undanfarin tvö ár Guðmundur Skarphéðinsson, formaður, Anita Elefsen, Hilmar Elefsen, Sandra Finnsdóttir og Ægir Bergsson.
Undirbúiningur hefur gengið vel en við kappkostum við að nota heimafólk eins mikið og hægt er. Dagskráin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Líkt og áður leggjum við mikið upp úr samvinnu við þjónustuaðila í heimabyggð og bjóðum öllum þeim sem sem
hafa eitthvað fram að færa á tímabilinu 25. júlí – 4. ágúst að senda okkur tölvupóst á netfangið siglosild@gmail.com. Allir dagskrárliðir verða prentaðir, aðilum að kostnaðarlausu, í dagskrá hátaðarinnar sem
dreift verður á öll heimili á Norðurlandi. Hægt er að senda inn dagskrárliði til sunnudagsins 30. júní n.k.
Leggjumst öll á eitt og gerum dagskrána eins glæsilega og mögulegt er!
Undirbúningsnefndin vill einnig koma á framfæri kærum þökkum til heimamanna hér í Fjallabyggð fyrir velvilja í garð
hátíðarinnar.
Athugasemdir