Síldarævintýrisfundur á Allanum klukkan 20:30 í kvöld
Nú hefur Síldarútvegsnefnd, sem skipuð var utan um síldarævintýrið á Siglufirði árið 2010, starfað í 12 vikur og lagt drögin að félagi utan um Síldarævintýrið í framtíðinni. Stofnfundur félagsins verður haldinn klukkan 20:30 í kvöld á Allanum.
Um mjög mikilvægan fund er að ræða þar sem framtíð Síldarævintýrisins á Siglufirði verður mótuð með áhugamannafélagi um hátíðina. Nefndin mun einnig kynna það sem hún hefur unnið að síðastliðna 3 mánuði og þær hugmyndir sem uppi eru um dagskrárliði.
Grunnurinn að vel heppnaðir hátíð er að bæjarbúar séu áhugasamir um hana og finnist hún skemmtileg og væri því glæsilegt ef sem flestir sjái sér fært að mæta og láta upp hugmyndir um dagskrárliði og aðra tilhögun hátíðarinnar.
Sigló.is hvetur Siglfirðinga til að fjölmenna á fundinn í kvöld og sameinast um að halda glæsilegt Síldarævintýri árið 2010.



Athugasemdir