Síldarminjasafn Íslands - Sölu jólakorta hætt

Síldarminjasafn Íslands - Sölu jólakorta hætt Fréttatilkynning frá SíldarminjasafninuSíldarminjasafnið hefur hætt árlegri jólakortaútgáfu sem staðið hefur

Fréttir

Síldarminjasafn Íslands - Sölu jólakorta hætt

10. kortið Vetrarkvöld - vatnslitamynd ÖK
10. kortið Vetrarkvöld - vatnslitamynd ÖK

Fréttatilkynning frá Síldarminjasafninu

Síldarminjasafnið hefur hætt árlegri jólakortaútgáfu sem staðið hefur frá 1989. 


Þegar Félag áhugamanna um minjasafn hóf að undirbúa uppbyggingu minjasafns á Siglufirði var þessi kortasala fyrsta fjáröflunarleiðin. Síðan hafa tuttugu mismunandi kort verið prentuð og seld og á þeim tíma hefur minjasafn okkar Siglfirðinga orðið til og vaxið í það að verða eitt af stærstu söfnum landsins.
Fyrstu árin gengu félagar Fáum í hús og buðu kortin til sölu en síðan fór salan að miklu leyti fram í verslunum og með áskrift til brottfluttra Siglfirðinga. Árleg sala var frá 2300 til 3000 kort. Eldri kort verða seld fyrir jólin og verður það auglýst sérstaklega.

Síldarminjasafnið og Félag áhugamanna um minjasafn þakka fyrir viðskiptin og góðan stuðning á umliðnum árum! Sérstakar og innilegar þakkir fær Guðný Guðmundsdóttir fyrir ómetanlegt farmlag.



Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst