Sirkus Baldoni – Margmenni í höllinni
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 12.09.2009 | 07:10 | | Lestrar 604 | Athugasemdir ( )
Í gærköldi var hinn danski Sirkus Baldoni með stórkostlega sýningu í íþróttahöllinni á Siglufirði, sem sirkusstjórinn Baldoni stjórnaði af sinni alkunnu snilld.
Sirkusinn verður með sýningar á Norður- og Austurlandi í september. Sirkus Baldoni hefur verið kallaður eftirlætis sirkus fjölskyldunnar og ekki er það af ástæðulausu. Samsetningin sýningarinnar tekur tillit til þeirra yngstu en um leið eru listræn gæði á háu stigi og höfðar sýningin jafnt til ungra sem aldna. Atriðin hjá Sirkus Baldoni eru frá Kína, Ungverjalandi, Englandi og Danmörk. Þau eru djörf, skemmtileg og spennandi og halda athyglinni fanginni frá upphafi til enda. Undrun og gleði skein úr hverju andliti á sýningunni í gær enda atriðin hverju öðru skemmtilegra. Til dæmis var áhrifamikið atriði þar sem fjöllistakona kastaði á glæsilegan hátt litlum skálum upp í loftið með fætinum þannig að þær lentu að lokum á hvirfli hennar, ekki má gleyma að á meðan á þessu stóð hélt listamaðurinn jafnvægi á 2½ metra háu hjóli! Einnig sýndi trúðapar færni í diskódansi og voru þau líka með bráðfyndið mjaltaatriði. Að ógleymdum listamönnum frá Kína sem sýndu jafnvægislistir á fagmannlegan máta. Á morgun verður Sirkusinn með sýningu kl. 15.00 á Sauðárkróki. Myndir HÉR

Margrét, Dóra & Eyrún

Athugasemdir