Sissa og dáðadrengirnir í Dótakassanum
sksiglo.is | Almennt | 24.03.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 766 | Athugasemdir ( )
Eins og oft áður kom ég við í Dótakassanum einn
góðviðrisdag í vikunni.
Þar var líf og fjör eins og vanalega, sögur og skemmtilegheit flugu á milli
manna og engin lognmolla var við kaffiborðið þann daginn.
Á meðan Sissa hans Gunna Júll var að fúga eftir flísalögn sem
hún lagði niður daginn áður þá sátu drengirnir við kaffiborðið og sögðu henni alveg listavel til. Þeir voru
óhræddir við að miðla af þekkingu sinni úr reynslubankanum þannig að það er óhætt að segja að Sissa hafi lært
alveg heilan helling af þessu.
Glæsilega gert hjá Sissu og dáðadrengjunum í Dótakassanum.


Athugasemdir