20 íbúðarhús á Siglufirði skemmd?

20 íbúðarhús á Siglufirði skemmd? Óttast er að um 20 íbúðarhús á Siglufirði séu ýmist skemmd eða ónýt vegna byggingar snjóflóðavarnagarða fyrir ofan bæinn.

Fréttir

20 íbúðarhús á Siglufirði skemmd?

Hluti snjóflóðavarnargarðanna
Hluti snjóflóðavarnargarðanna

Óttast er að um 20 íbúðarhús á Siglufirði séu ýmist skemmd eða ónýt vegna byggingar snjóflóðavarnagarða fyrir ofan bæinn.


Fimm manna fjölskylda treystir sér ekki til að búa lengur á heimili sínu vegna skemmda á holræsislögnum.Samkvæmt upplýsingum frá bæjartæknifræðingi Fjallabyggðar hefur sveitarfélagið látið gera mat á skemmdum á húsunum; samkvæmt því leikur enginn vafi á því að skemmdir á sumum húsanna megi rekja til varnagarðanna, ekki sé hins vegar víst hvort að það sama eigi við um önnur. Húsin hafa annars vegar skemmst vegna vatnsflaums og hins vegar vegna þurrka í jarðvegi.

Sveitarfélagið Fjallabyggð á snjóflóðavarnagarðana en ofanflóðasjóður hins vegar byggði þá. Baldvin Ingimarsson, sem býr ásamt fjölskyldu sinni í einu umræddra húsa, segir að gólfplatan hafi mest sigið um 10 sentímetra heima hjá honum, þar að auki hafi holræsalagnir skemmst.

Heimild:http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234904/

Athugasemdir

15.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst