Skemmtiferðaskip í höfn

Skemmtiferðaskip í höfn Það fór vart fram hjá bæjarbúum að skemmtiferðaskipið Spirit of Adventure lagðist við Siglufjarðarhöfn í morgun. Ekki er þó

Fréttir

Skemmtiferðaskip í höfn

Spirit of Adventure
Spirit of Adventure
Það fór vart fram hjá bæjarbúum að skemmtiferðaskipið Spirit of Adventure lagðist við Siglufjarðarhöfn í morgun. Ekki er þó algengt að svo stór skip komi inn í fjörðinn þó svo að höfnin hafi alla burði til að taka á móti þeim enda ristir skipið ekki nema ríflega 5 metra.

Það var auðséð að skipstjórinn, Captain Alistair McLundie var ánægður með dvölina enda nýkominn úr túr af Landsbjargarfleyinu Sigurvin þegar fréttamann Sigló.is bar að garði, en svoleiðis bátar eru síður en svo óþekktir undir ströndum Skotlands.


Eftir að hafa rætt lítillega við kapteininn og tekið myndir af skipinu fékk Sigló.is leifi til að skoða herlegheitin að innan og taka nokkrar myndir fyrir vefinn. Meðan  McLundie leiddi fréttamann Sigló.is upp að stórglæsilegu skipinu spurði fréttamaður hann að því hvernig væri að koma í Siglufjörð:


Það er lítið mál að sigla hingað inn og ávalt gaman að koma í litlar hafnir sem ekki hafa smitast af of miklum túrisma. Gestirnir eru spenntir fyrir að sjá eitthvað nýtt, eitthvað annað en það venjulega. Það er sjarmur yfir litlum bæjum sem gerir þá að skemmtilegum áningastöðum.


Eftir stutt rölt meðfram skipinu fékk skipstjórinn áhafnarmeðlimi sína til að lóðsa Sigló.is snögglega um skipið, enda ekki nema 30 mínútur í að það legði aftur úr höfn.

 

Fleiri myndir má sjá HÉR.


Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst