Skemmtileg frétt frá 1964

Skemmtileg frétt frá 1964 Skemmtileg frétt birtist í Morgunblađinu miđvikudaginn 24. júní 1964. Myndirnar og fréttin birtust einnig áđur á gamla vefnum.

Fréttir

Skemmtileg frétt frá 1964

Skemmtileg frétt birtist í Morgunblaðinu miðvikudaginn 24. júní 1964. Myndirnar og fréttin birtust einnig áður á gamla vefnum.
 
Steingrímur Kristinsson skrifaði fréttina og tók myndirnar á sínum tíma.
 
 
 
 

HÉR á Siglufirði tóku nokkrir vaskir drengir  sig saman fyrir skömmu og byggðu þar félagsheimili á staurum úti á sjó það er  næstum fullbúið nú og hefur verið tekið í  notkun. Húsið er 4 herbergi og gangur niðri,  auk tveggja herbergja í risi Til flutninga til og  frá húsinu, sem drengirnir nefna Sjávarborg, hafa þeir litla kænu.

Ég er 80 kg að þyngd, en þeim óx  ekkert, í augum að ferja mig út í  Sjávarborg, þegar ég heimsótti þá á dögunum.

sjavarborg

Strákarnir stofnuðu í byrjun með sér  félagsskap í þeim tilgangi að reisa hús  þetta, þar sem þeir gætu stytt sér stundir. 

Lög félagsins voru ekki mjög flókin, enda aðeins í gildi meðan Sjávarborg var í byggingu.  Þau hljóða svo:

Allir skulu vinna að  byggingunni meðan á verkinu stendur, en  mæti einhver félagsmanna ekki til vinnu,  skal hann greiða kr.2.00 í sjóð, sem nota skal til að kaupa fyrir nagla og aðrar  byggingavörur. Árni, gjaldkeri, sagði mér á  ferjunni á leiðinni út í Sjávarborg, að nauðsynlegt hefði verið að meðlimirnir  fengju sér frí við og við, til þess að eitthvað  kæmi í sjóðinn.

sjavarborg

Annars kvað hann mest af  byggingarefninu hafa fengist í fjörunni og af  öskuhaugunum, sem eru þarna í grenndinni.

Meðlimir félagsins hafa að sjálfsögðu með  sér verkaskiptingu. Kristján er forstjóri,  arkitekt, trésmíðameistari og uppfinningamaður, Árni gjaldkeri, Magnús  kokkur, Árni kyndari, Björn aðstoðarmaður,Kjartan hjálpar- kokkur, Þórður aðstoðarmaður, Björn  aðstoðarmaður og Guðbrandur vélsög. 

sjavarborg

Guðbrandur notar ekki vélsög við starfa  Sinn, heldur hefur verið skírður nafni þessu, þar sem vinnubrögð hans í höndum  þykja líkjast vélsög.

sjavarborg

 S.K.

Skemmtileg frétt og sýnir líka hversu mikið er breytt í sambandi við leik barna frá þessum árum og til dagsins í dag.

Hér geturðu farið beint inn á fréttina á gamla vefnum.




Athugasemdir

28.október 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst