Skemmtileg mynd

Skemmtileg mynd Þessa sögulegu og bráðskemmtilegu mynd er að finna uppi á vegg á efstu hæðinni í Ráðhúsinu á Siglufirði, þar sem hún snýr að starfsfólki

Fréttir

Skemmtileg mynd

Þessa sögulegu og bráðskemmtilegu mynd er að finna uppi á vegg á efstu hæðinni í Ráðhúsinu á Siglufirði, þar sem hún snýr að starfsfólki Fjallabyggðar og er því minna áberandi en ástæða væri þó til.

Einhverjir glöggir, hirðusamir og líklega einnig listunnandi bæjarstarfsmenn ráku augun í hana á sínum tíma þegar hún var á leiðinni á haugana og björguðu henni frá förgun, - þökk sé þeim.

Hún hafði um áratugi hangið uppi vegg á ágætu heimili niður á eyri, en því miður á stað sem hefur sennilega verið full nálægt koladraugnum eða olíufíringunni”. Myndin var orðin illa farin vegna sóts, mikilla hitabreytinga í gegn um tíðina svo og annarra skyldra þátta sem hafa haft miður góð áhrif á hana.
Hún var “endurlífguð” ef þannig mætti að orði komast, þ.e. send til hreinsunar, viðgerðar og síðan sett í fallegan ramma sem hæfði henni.

Fremst og því næst fyrir miðri mynd má sjá Eyri og lengra frá og til hægri er Kambur, en út með ströndinni að vestan (vinstra megin) er Bakki. Allt eru þetta þekkt örnefni, en þar fyrir utan er fjöldi fólks kenndur við þessi gömlu hús þrátt fyrir að þau  séu öll löngu horfin. Þá má sjá hvar bátar hafa verið dregnir upp í malarkambinn í fjörunni austan Hvanneyrarkróks sem núna gæti vel verið skammt norðan Mjölhússins, því Þormóðseyrin mun hafa stækkað til norðurs þó landfylling á þá áttina sé að öllum líkindum minni en til austurs og þó sérstaklega suðurs.
LRÓ.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst