Skemmtilegt skýjafar
sksiglo.is | Almennt | 30.08.2010 | 01:11 | Bergþór Morthens | Lestrar 306 | Athugasemdir ( )
Sveinn Þorsteinnsson tók þessar skemmtilegu myndir af skýjafarinu yfir Siglufirði í gær. Þetta líkist fallegum pensilstrokum í himninum.
Þarna eru sennilega á ferðinni svokallaðir Klósigar. Á heimasíðu veðurstofunnar kemur fram að þeir mynda einstakar silkigljáandi rákir eða bönd hátt á himninum.
Stundum eru klósigarnir bognir upp á við í annan endann og nefnast þá vatnsklær, en þær eru fyrirboði þess að þykkni upp af bliku, grábliku og regnþykkni.
Klósigar eru myndaðir úr ískristöllum og vegna þess hve hátt skýin liggja eru þau fyrstu skýin sem roðna við sólarupprás. Þau eru sýnileg eftir sólarlag.
Klósigar eru flokkaðir sem háský og myndast í 6 - 12 km hæð.

Athugasemdir