Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára

Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára Skíðafélag Siglufjarðar var stofnað 8. febrúar 1920 og fagnar því 90 ára afmæli í dag. Í tilefni af afmælinu var ákveðið

Fréttir

Skíðafélag Siglufjarðar 90 ára

Vatnslitamynd eftir Ragnar Pál
Vatnslitamynd eftir Ragnar Pál

Skíðafélag Siglufjarðar var stofnað 8. febrúar 1920 og fagnar því 90 ára afmæli í dag. Í tilefni af afmælinu var ákveðið að setja upp litla sýningu í glugga KS skrifstofunnar, en verið er að vinna að söfnun gripa fyrir væntanlegt skíðaminjasafn á Siglufirði. Í Sparisjóðnum er svo myndasýning til heiðurs skíðaíþróttinni.

Í tilefni dagsins bíður skíðasvæðið öllum frítt í fjallið í dag og kaffi, kakó og kökur í skíðaskálanum.


Siglfirðingar sköpuðu sér góðan orðstír fyrir afrek sín á skíðum og áttu þeir marga af fremstu skíðamönnum landsins á 20. öld. Siglufjörður hafði þá sérstöðu að í þessu litla bæjarfélagi störfuðu tvö skíðafélög um árabil. Fyrsta skíðafélagið var stofnað árið 1920 og markaði það upphaf skíðaíþróttarinnar sem keppnisgreinar. Sumarið 1936 varð klofningur innan félagsins og stofnað var annað félag sem hlaut nafnið Skíðafélagið Siglfirðingur, síðar nefnt Skíðaborg. Árið 1952 voru félögin sameinuð í  Skíðafélag Siglufjarðar – Skíðaborg. RMH


Athugasemdir

20.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst