Skíðasvæðið opnar í dag. Myndir og myndband

Skíðasvæðið opnar í dag. Myndir og myndband Skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal opnar í dag kl. 11:00 Eins og sést á myndunum og myndbandinu sem fylgir

Fréttir

Skíðasvæðið opnar í dag. Myndir og myndband

Skíðasvæðið opnar í dag

Skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal opnar í dag kl. 11:00

Eins og sést á myndunum og myndbandinu sem fylgir með þessari frétt þá er nægur snjór á svæðinu. Myndirnar og myndbandið var tekið í snjótroðaraferð á miðvikudaginn síðasta.

Egill Rögnvaldsson, Sigurjón Ásgeirsson og Birgir Egilsson eru búnir að vinna baki brotnu við það koma diskum og T-um á lyfturnar og gera þetta allt saman klárt eins og sagt er og að sjálfsögðu Kári Hreinsson troðaramaður að gera brekkurnar slikimjúkar.

Fyrir þá sem ekki vita er skíða og brettaleiga á staðnum þannig að þú þarft í raun og veru ekki að koma með neitt nema úti fötin og góða skíða skapið.

Skellum okkur á skíði.

skarðVið neðri hluta bungulyftu.

skarðVið Neðstu lyftu.

skarðEfsta svæði T-lyftu.

skarðKári Hreinsson

skarðEgill Rögnvaldsson

 


Athugasemdir

31.maí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst