Skólahreysti 2010

Skólahreysti 2010 Síðastliðinn fimmtudag fóru fram fyrstu þrír riðlar af tíu í Skólahreysti MS 2010. Skólar af öllu landinu geta tekið þátt og eru 120

Fréttir

Skólahreysti 2010

Lára Berglind Helgadóttir
Lára Berglind Helgadóttir
Síðastliðinn fimmtudag fóru fram fyrstu þrír riðlar af tíu í Skólahreysti MS 2010. Skólar af öllu landinu geta tekið þátt og eru 120 skólar skráðir til leiks í ár sem er mesta þátttaka hingað til.

Tólf skólar munu keppa til úrslita. Það verða tíu riðlar og stigahæsti skólinn í hverjum riðli kemst í úrslit. Einnig verða teknir tveir skólar til viðbótar og eru það þeir skólar sem bestan árangur hafa en náðu ekki fyrsta sæti.

Það verða búnir til fjórir þættir af keppnunum sem sýndir verða á RÚV alla fimmtudag í apríl sem enda  svo með úrslitum og beinni útsendingu úr Laugardalshöll 29.apríl.  Skemmtilegir og spennandi fimmtudagar í apríl framundan. Það eru Ásgeir Erlendsson og Felix Bergsson sem verða umsjónamenn þáttarins og spjalla við flotta unglinga og íþróttakennara .

Íþróttahúsið fylltist út úr dyrum þrisvar sinnum í gær af flottum stuðningsmönnum sem studdu sinn skóla af lífs og sálarkröftum. 

Í fyrsta riðli voru skólar af Suðurlandi. Færð var erfið og komust allir skólar á keppnisstað að undanskildum tveimur, Gr.í Vestmannaeyjum og Kirkjubæjarskóli.  
 
Það var Gr.Hellu sem sigraði riðilinn með 40.5 stigum. Gr.Bláskógarbyggðar varð í öðru sæti með 35 stig og í þriðja sæti varð Hvolsskóli me 33,5 stig. 
 
Í öðrum riðli voru skólar úr Breiðholti, Árbæ,Grafarvogi,Grafarholti og Norðlingaholti. 
 
Það var Ölduselsskóli sem náði efsta sæti þar með 83 stig. Rimaskóli annað sæti með 77,5 stig og Árbæjarskóli varð í þriðja sæti með 77 stig.
 
Í þriðja riðli voru skólar í Vesturbæ og Austurbæ að  takast á. 
 
Það varð Austurbæjarskóli sem sigraði með hálfu stigi á Valhúsaskóla.  Austurbæjarskóli náði 49,5 og Valhúsaskóli í öðru sæti með  49 stig.  Í þriðja sæti var Laugalækjarskóli með 44 stig. 
 
Næsta keppni verður á Egilsstöðum næsta fimmtudag 04.mars.  Farið verður til Akureyrar 11.mars og keppt í Íþróttahöllinni.  Þar verða tveir riðlar, einn utanbæjarriðill og svo annar með skólum innanbæjar.

Allar nánari upplýsingar eru að finna á www.skolahreysti.is

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst