Snjóblásarinn inni
Það var fyrir tilviðjun að fréttamaður rak nefið inn á verkstæði Bás í morgunsárið og við honum blasti gríðarstór snjóblásari, var þar verið að gera að honum. Básararnir földu sig ofan í grifjunni meðan myndasmiðurinn athafnaði sig en þar voru þeir að tappa olíu af græjunni stórfenglegu. Til allrar hamingju var ekkert stórræði að enda næg verkefni fyrir hann að takast á við nú í dag.
Mikið hefur snjóað nú í nótt og er hann mjög blautur og þungur, verður því gott að sjá blásarann hefja vinnu aftur við hreynsun helstu aðalæðum meðan sköfurnar sjá um minni götur, gatnamót og væntanlega annað innanbæjar.
Athugasemdir