Snjódans Egils „Skarðsprins“ Rögnvaldssonar

Snjódans Egils „Skarðsprins“ Rögnvaldssonar Egill vinnur nú hörðum höndum að því að laða að sér snjóinn, hefur honum tekist vel til að sækja hann ofar í

Fréttir

Snjódans Egils „Skarðsprins“ Rögnvaldssonar

Höddi Júll heimsótti Skarðið fyrir tveimur vikum
Höddi Júll heimsótti Skarðið fyrir tveimur vikum
Egill vinnur nú hörðum höndum að því að laða að sér snjóinn, hefur honum tekist vel til að sækja hann ofar í hlíðarnar síðastliðna viku og er færi orðið mjög flott í neðstu lyftunum að hans sögn þar sem fjölbreyttar brekkur eru nú í boði.




Þegar fréttamaður hafði samband við hann á föstudagsmorgun hafði hann hinsvegar tekið uppá þeirri nýung að dansa „snjódansinn“ sem eflaust er hans eigin útfærsla af regndansi frumbyggja Ameríku. Svo virðist sem sá dans hafi virkað því í þeim töluðu orðum leit fréttamaður út og sá hvítar snjóflögur svífa úr lofti. Í nótt hefur síðan meira af hvíta gullinu svifið til jarðar og bætt í stolt okkar Siglfirðinga, Skíðasvæðið í Skarðsdal.

Langtíma veðruspá fyrir páskana lítur vel út og á veður að vera hæglátt og nokkuð hlýtt, frábært til skíðaiðkunar.


Athugasemdir

09.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst