Sól og blíða
sksiglo.is | Almennt | 05.09.2010 | 12:23 | Bergþór Morthens | Lestrar 446 | Athugasemdir ( )
Einmuna blíða hefur verið á norðurlandi undanfarna daga. Siglfirðingar hafa fengið sinn skerf að góðviðrinu og lífgar það svo sannarlega upp á mannlífið.
Hitamælirinn góði hjá Sparisjóðnum sýndi 21 gráðu rétt fyrir hádegi og má alveg búast við því að hitinn verði meiri þegar líður á daginn.
Það er allt útlit fyrir áframhaldandi blíðu og er þessi hlýi loftmassi sem er yfir landinu hreint með ólíkindum.
Gleðilegan sumarauka.

Athugasemdir