Sólbaðs- og grillveður um helgina ?
sksiglo.is | Almennt | 08.10.2010 | 09:33 | Bergþór Morthens | Lestrar 375 | Athugasemdir ( )
Einstaklega góðar veðurhorfur eru í kortunum fyrir komandi helgi. Haustið hefur verið okkur afar gott á hér á Siglufirði og útlit er fyrir áframhald á því.
Það er ekki á hverjum degi sem búast má við hægviðri, bjartviðri og háum dagshita og það í októbermánuði, en þannig lítur helgin einmitt út.
Hinn ágæti veðurfræðignur Siggi Stormur talar um sólbaðs- og grillveður um helgina.
Nú er bara að draga fram grillin og gera pallinn klárann- bara að muna eftir sólarvörninni.




Athugasemdir