Miðvikudagur 28. september 2011

Miðvikudagur 28. september 2011 Varðskipið ÞÓR sigldi í dag kl. 16:29 að íslenskum tíma, úr höfn  Asmar skipasmíðastöðvar sjóhersins í Chile þar sem

Fréttir

Miðvikudagur 28. september 2011

Varðskipið Þór
Varðskipið Þór

Varðskipið ÞÓR sigldi í dag kl. 16:29 að íslenskum tíma, úr höfn  Asmar skipasmíðastöðvar sjóhersins í Chile þar sem skipið hefur verið í smíðum frá árinu 2007. Framundan er sjö þúsund sjómílna sigling (um fjórtán þúsund kílómetrar) til Íslands.

Leiðin liggur upp með Suður-Ameríku, gegnum Panamaskurðinn, upp til Boston og þaðan til Halifax.  Verður síðan siglt yfir Norður Atlantshafið áleiðis til Vestmannaeyja. Koma til Eyja er áætluð miðvikudaginn 26. október. Ef allt gengur eftir á Þór að koma til hafnar í Reykjavík fimmtudaginn 27. október. 

ÞÓR var afhentur Landhelgisgæslunni sl. föstudag en Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar veitti skipinu viðtöku ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra í innanríkisráðuneytinu í ASMAR skipasmíðastöð sjóhersins í Chile. Sjá frétt um afhendinguna hér.

Helstu stærðir varðskipsins Þórs til samanburðar við varðskipið Týr

 

 

v/s TYR - Helstu stærðir

 

Nýtt varðskip - Helstu stærðir

 

Eigin þyngd .........................     342 Tonn
Lengd .................................       71,15 M
Breidd ..................................     10,00 M
Mesta djúprista ......................      5,80 M
Togkraftur .............................   56 Tonn

Brúttótonn.........................     1.271 Tonn 

 

Eigin þyngd .......................... 1,000 Tonn
Lengd.................................. . 80 – 90 M
Breidd.................................. . 15 - 16 M
Mesta djúprista...................... .... 6.50 M
Togkraftur .........................100  Tonn minimum

Brúttótonn .............................4250 Tonn


Athugasemdir

13.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst