Staðreyndir um Eyrarmyndina
sksiglo.is | Almennt | 02.07.2010 | 09:34 | Síldarminjasafnið | Lestrar 348 | Athugasemdir ( )
Sagt var frá þessari mynd hér á síðunni um daginn og eru hér nokkrar réttar upplýsingar. Myndin er máluð af Maron Sölvasyni og gefin Siglufjarðarkaupstað af Ólafi Matthíassyni. Og fleira má segja um myndina
sem telja má réttar upplýsingar: Maron, f. 1881 d. 1958, var húsasmiður á Siglufirði og síðar á Akureyri. Hann málaði tvær myndir af Eyrarbænum með sýn til Kambshúsanna og út til fjarðarmynnisins og það mun hafa verið árið 1903. Myndin sýnir vel hvernig íbúðarhús margra Siglfirðinga voru í byrjun 20. aldar. Myndirnar tvær héngu um áratugi í stofu Eyrarhússins í eigu fjölskyldunnar. Eftir dag síðustu íbúanna þar, þeirra Kristínar og Kristins Sigurðarbarna (Stína og Kiddi á Eyri) þá gaf Ólafur Matthíason fyrir hönd fjölskyldunnar bænum þessar sögulegu myndir. Þær voru í ágætu ástandi en eins og sæmir góðum gjöfum af þessu tagi þá sendi þáverandi bæjarstjóri, Guðmundur Guðlaugsson, myndirnar suður til Morkinskinnu þar sem þær voru hreinsaðar og settar í nýja ramma. Og síðan hefur meðferð þeirra verið með eðlilegum hætti. -ök

Athugasemdir