Starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar álykta eftirfarandi
sksiglo.is | Almennt | 08.10.2010 | 16:55 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 486 | Athugasemdir ( )
Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar mótmæla harðlega þeim niðurskurði sem nú er framundan í heilbrigðismálum á landsbyggðinni og skerðingu á þeirri grunnþjónustu sem því fylgir.
Dapurt er að horfa á þá starfsemi sem byggð hefur verið upp í okkar velferðarkerfi og við höfum átt þátt í að móta, rifna og tætta niður með þeim afleiðingum að vegið er að öryggi íbúa.
Starfsmenn HSF skora því á ráðherra velferðarmála að endurskoða tillögur sínar að sparnaði í heilbrigðiskerfinu.




Athugasemdir