Stefán Logi Magnússon
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 26.11.2009 | 14:00 | | Lestrar 585 | Athugasemdir ( )
Fyrrverandi markvörður KS, Stefán Logi Magnússon, var nú á dögunum með markmannsæfingar fyrir verðandi markmenn KS. Stefán leikur nú með Lilleström í Noregi en hann spilaði með KS á árunum 2005-2006 og fór þaðan til KR. Það er mikill fengur fyrir knattspyrnuna hér á Siglufirði þegar atvinnumenn koma heim í fjörðinn og leiðbeina stjörnum framtíðarinnar.
Óhætt er að segja að KS hjartað hjá Stefáni slái á réttum stað því hann ætlar að koma aftur í desember til okkar. Stefán sagði við siglo.is að hann ættir KS mikið að þakka því hann var eiginlega hættur í fótbolta þegar þjálfari KS fékk hann til liðs við KS og nú væri hann að gera það sem honum finnst skemmtilegast, að leika knattspyrnu.

Athugasemdir