Stjórnmálaályktun aðalfundar kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi

Stjórnmálaályktun aðalfundar kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi Fjölmennur aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í

Fréttir

Stjórnmálaályktun aðalfundar kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi

Fjölmennur aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fór fram á Hótel Seli í Mývatnssveit laugardaginn 17.október s.l. Á fundinum var Guðmundur Skarphéðinsson endurkjörinn formaður kjördæmisráðs ásamt því að ný stjórn var kosin. Á fundinum var meðfylgjandi stjórnmálaályktun samþykkt.
Skora á ríkisstjórnina að endurskoða ákvörðun um Bakka
- stjórnmálaályktun Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi

Efnahagslíf þjóðarinnar varð fyrir miklum áföllum í kjölfar bankahrunsins. Tekjustofnar ríkisins hafa skroppið saman og ríkissjóður er rekinn með miklum halla. Því þarf að breyta. Ríkisstjórnin hefur brugðið á það óhjákvæmilega ráð að boða til hagræðingar og niðurskurðar og er ekki hægt að gera athugasemdir við það þrátt fyrir að sjálfstæðismenn leggi aðrar áherslur. Sú ráðstöfun að hækka skatta stórkostlega til að mæta halla er hinsvegar ámælisverð. Auknir skattar á fólk og fyrirtæki draga máttinn úr efnahagstarfseminni, minnka skattstofna og lengja og dýpka kreppuna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í nýlegum efnahagstillögum sínum bent á aðrar leiðir til að afla ríkissjóði tekna. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi skorar á ríkisstjórnina að hverfa frá villu síns vegar og hætta við skattahækkunaráform sín og skoða þess í stað af fullri alvöru að fara að tillögum Sjálfstæðisflokksins.


Orkuskattar hamla fjárfestingu og gjaldeyrisskapandi starfsemi

Þingeyjarsýslur búa yfir ríkulegum náttúruauðlindum. Náttúrufegurð er mikil, gnægð orku í jörð og landgæði mikil. Atvinnuástand hefur hinsvegar verið fremur óburðugt og árstíðabundið. Af þessum ástæðum hefur mikil áhersla verið lögð á það af íbúum svæðisins að leiðir verði fundnar til að nýta þessar náttúruauðlindir. Í kjölfar uppbyggingar Fjarðaáls á Reyðarfirði vaknaði áhugi Alcoa á að nýta þá þekkingu og reynslu sem myndast hafði þar til að byggja nýtt álver. Í kjölfarið var viljayfirlýsing stjórnvalda og Alcoa um byggingu álvers á Húsavík undirrituð með það í huga að nýta orkuauðlindir, meðal annars á Þeistareykjum. Ferill þess verkefnis er þyrnum stráður. Ákvörðun umhverfisráðherra Samfylkingarinnar sumarið 2008 setti strik í reikninginn og neitun ríkisstjórnarinnar, þvert á vilja íbúa svæðisins, á framlengingu viljayfirlýsingarinnar nú nýverið var reiðarslag fyrir þjóðina. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi skorar á ríkisstjórnina að endurskoða ákvörðun sína um Bakka og afstöðuna almennt til orkunýtingariðnaðar á Íslandi. Þá á að hverfa nú þegar frá áformum um orkuskatta en þeir gera ekkert annað en að hamla fjárfestingu og gjaldeyrisskapandi starfsemi.

Samgöngur hafa tekið stórstígum framförum á Norður- og Austurlandi síðustu ár. En betur má ef duga skal. Vaðlaheiðargöng, Samgöng með Norðfjarðargöng sem fyrsta áfanga og Hófaskarðsleið, vegur um suðurfirði Austfjarða og Dettifossvegur eru algjör forgangsmál. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi hefur ríkistjórnin valið að skera niður fjárveitingar og stöðva þar með útboð og framkvæmdir þrátt fyrir að Dettifossvegur og Hófaskarðsleið séu hálfkláraðar. Þá þarf að ljúka framkvæmdum við flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Þessar samgöngubætur myndu verða mikil lyftistöng fyrir búsetu, ferðaþjónustu og annað atvinnulíf á svæðinu. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi skorar á ríkisstjórnina að veita auknu fjármagni til framkvæmda á næsta ári. Ekki eingöngu vegna framkvæmdanna heldur einnig vegna þess að samdrátturinn leiðir til gjaldþrota smáverktaka um allt land og atvinnuleysis meðal starfsmanna í þessum geira atvinnulífsins.  

Heilbrigðisþjónusta er einn af hornsteinum samfélagsins sem allir landsmenn, óháð búsetu, eiga jafnan rétt til. Nauðsynlegt er að tryggja rekstrargrundvöll heilbrigðistofnana og gera þeim kleift að færa aukna þjónustu heim í hérað og sinna hlutverki sínu. Mikilvægt er að fyrirhugaður niðurskurður í ríkisfjármálum grafi ekki undan þessu meginhlutverki eins og nú virðist útlit fyrir. Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi skorar því á ríkisstjórnina að staðinn verði vörður um þá þjónustu sem heilbrigðisstofnanir kjördæmisins veita.


Framtíðarhorfur í sjávarútvegi og atvinnumál strandbyggða í uppnámi

Háskólinn á Akureyri er ein af grunnstoðum menntakerfisins í fjórðungnum og því afar mikilvægt að yfirstjórn skólans sé heima fyrir. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi mótmælir því öllum áformum um sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands.

Í stjórnarsáttmála sammæltust stjórnarflokkarnir um að innleiða mikla óvissu í útgerð á Íslandi. Þetta var gert með því að kynna til sögunnar svokallaða fyrningarleið. Þetta hefur leitt til þess að framtíðarhorfur í sjávarútvegi hafa verið settar í algjört uppnám og þar með atvinnumál í strandbyggðum landsins. Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi skorar á ríkisstjórnina að lýsa því þegar í stað yfir að horfið verði frá áformum um fyrningu aflaheimilda. Í þeirri viðleitni að auka verðmæti sjávarfangs er jafnframt ályktað að makrílveiðar verði settar í aflamark fyrir næstu vertíð.

Fyrirhuguð hagræðing á skattumdæmum og sýslumannsembættum virðist ekki hafa verið hugsuð til enda. Sameining og niðurlagning bitna sérstaklega illa á landsbyggðinni – störf færast frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Þessu mótmælir Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi harðlega og skorar á ríkisstjórnina að endurskoða þessa ákvörðun sína.

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst