Stjörnukvöld í Allanum

Stjörnukvöld í Allanum Papar og gestir voru með tónleika hér á Siglufirði í gærkvöldi, en 100 manns mættu í Allann og ekki var annað að sjá en að fólk

Fréttir

Stjörnukvöld í Allanum

Sjálfur kóngurinn, Bubbi Morthens
Sjálfur kóngurinn, Bubbi Morthens
Papar og gestir voru með tónleika hér á Siglufirði í gærkvöldi, en 100 manns mættu í Allann og ekki var annað að sjá en að fólk skemmti sér mjög vel.
Heiti tónleikaferðarinnar er Papar & lögin hans Gylfa Ægis, og er hugmyndin að henni byggð á nýjustu geislaplötu Papanna "ég verð að dansa" þar sem frábærum lögum Gylfa Ægissonar eru gerð góð skil. Sérstakur gestur tónleikanna er Bubbi Morthens.


Bubbi opnaði tónleikana með því að leika nokkur lög. Papar komum svo inn í  lagið Dó dó og Dumma og spiluðum með honum 4 lög. Eftir að Bubbi fór af sviðinu hristu Papar upp í fólkinu með hreint frábærum lögum.


Gylfi tók því næst nokkur lög og sagði óborganlegar sögur eins og honum einum er lagið, hann fór hreinlega á kostum karlinn. Gylfi hefur marga fjöruna sopið og er dásamlegt að heyra hann segja frá ævintýrum sem hann hefur lent í. Paparnir spiluðu að sjálfsögðu undir hjá Gylfa og lokuðu svo tónleikunum með rólegu lagi eftir að Gylfi yfirgaf salinn. Paparnir höfðu á orði að þetta hefðu verið skemmtilegustu tónleikarnir sem þeir hefðu spilað á í þessari tónleikaferð sem er reyndar fyrsta stóra tónleikaferð þeirra um landið. Myndir HÉR






Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst