Stofnfundur Landsbyggðaflokksins

Stofnfundur Landsbyggðaflokksins Á stofnfundi Landsbyggðarflokksins þann 23. febrúar síðastliðinn, sem haldinn var á netinu með þátttakendum víða á

Fréttir

Stofnfundur Landsbyggðaflokksins

Á stofnfundi Landsbyggðarflokksins þann 23. febrúar síðastliðinn, sem haldinn var á netinu með þátttakendum víða á landinu, var samþykkt að kjósa bráðabirgðastjórn fram að framhaldsstofnfundi sem haldinn verður innan tveggja vikna. Hlutverk bráðabirgðastjórnar verður að vinna frekar að samþykktum og stjórnmálayfirlýsingum flokksins og framboði hans til alþingiskosninga á komandi vori.

Þau sem kosin voru í bráðabirgðastjórn eru:
Magnús Hávarðarson Ísafirði
Gunnar Smári Helgason Siglufirði
Haukur Már Sigurðarson Patreksfirði
Árni Björnsson Egilsstöðum
Ylfa Mist Helgadóttir Bolungarvík

Á fundinum var jafnframt eftirfarandi áskorun samþykkt:

Áskorun til stjórnvalda um samgöngumál
Landsbyggðarflokkurinn skorar á Alþingi Íslendinga að setja strax lög um flýtiframkvæmdir á þeim vegum sem hafa orðið útundan í samgönguframkvæmdum undanfarinna áratuga og eru svo illa úr garði gerðir að þeir þola ekki eðlilega vöruflutninga.
Það felst mikil skerðing á lífsgæðum íbúanna að búa við slíkt ástand og mikil samkeppnishindrun fyrir fyrirtæki sem háð eru flutningi um slíka vegi.
Nú þegar stofnfundur Landsbyggðarflokksins stendur yfir er heill landsfjórðungur, Vestfirðir, lokaðir eðlilegum vöruflutningum. Einnig eru víðtækar þungatakmarkanir á Snæfellsnesi, hluta af Norðurlandi og á Austurlandi. Engar þungatakmarkanir eru í grennd við Reykjavík.
Ástand þetta er ekki til komið vegna náttúrhamfara eða verulega óvenjulegra aðstæðna.
Alþingi hefur látið hjá líða að veita fé til Vegagerðarinnar til þess að hún geti sinnt eðlilegu hlutverki sínu, sem er að samfélgið gangi án verulegra samgönguhindrana. Landsbyggðarflokkurinn krefst úrbóta strax.




F.h. bráðabirgðarstjórnar Landsbyggðarflokksins
Magnús Hávarðarson

www.Landsbyggdin.is


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst