Stórtónleikar í Hannes Boy café
sksiglo.is | Almennt | 17.11.2010 | 11:30 | Sigríður María Róbertsdóttir | Lestrar 465 | Athugasemdir ( )
Annað kvöld, fimmtudaginn 18. nóvember, flytur Ómar Guðjónsson og hljómsveit hans efni af nýútkomnum disk Ómars, Von í Óvon, sem er hans þriðji sólódiskur.
Diskurinn inniheldur 10 frumsamin lög þar sem tónlistin er blanda af rokk, jazz og poppi með gítarinn í forgrunni.
Tónleikar sem þessir eru mikill fengur fyrir íbúa Fjallabyggðar því það má segja að liðsmenn hljómsveitarinnar teljast allir landsliðsmenn á sín hljóðfæri en hljómsveitina skipa:
Ómar Guðjónsson, gítar
Ingi Björn Ingason, bassi
Helgi Sv. Helgason, trommur
Matthías MD Hemstock, trommur
Sala aðgöngumiða verður í anddyri Hannes Boy Café og hefjast tónleikarnir kl. 21:00 og er miðaverð kr. 1.500 kr.




Athugasemdir