Strandblaksvöllurinn klár
sksiglo.is | Almennt | 30.05.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 338 | Athugasemdir ( )
Þá er strandblakið komið á fullt og vafalaust margir sem eru alveg í
skýjunum með það. Síðasta sumar var mikil aðsókn í völlinn og mikið af myndum sett inn á vefinn sem tengdist strandblakinu.
Síðustu ár hefur strandblakið verið í mikilli sókn á Siglufirði, og vafalaust á öðrum stöðum líka og ég er
fullviss um að það verði lítil breyting þar á.
Ég er allavega alveg ljómandi ánægður með það að
búið sé að opna völlinn.
Fyrir þá sem vita ekki hvar strandblaksvöllurinn er þá er hann
staðsettur á Rauðku-lóðinni.
Hér eru svo nokkrar myndir sem ég tók á strandblaksvellinum í
gær.













Athugasemdir