Sumardagurinn fyrsti á skíðum
sksiglo.is | Almennt | 25.04.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 539 | Athugasemdir ( )
Siglfirðingar nýttu Sumardaginn fyrsta vel í sumarsól og rjómablíðu.
Hvert sem litið var voru Siglfirðingar að njóta veðursins. Margir skelltu
sér í göngutúr í góða veðrinu, enn aðrir sátu fyrir framan kaffihús og sjoppur og svo voru margir sem nýttu daginn vel
í að ditta að húsum sínum og görðum.
Ég skellti mér á skíði í góða veðrinu.
Færið var í þyngri kantinum og frekar erfitt að skíða í troðnum brautum.
Núna eru margir sem eru að æfa skíði á Andrésar Andar leikunum
á Akureyri og foreldrarnir að sjálfsögðu margir hverjir með þannig að það var með rólegra móti í fjallinu þó
svo að þónokkur fjöldi hafi verið á skíðum. Sérstaklega ef maður miðar við skíða-páska
vertíðina.
Þegar ég kom úr fjallinu um 15:00 þá stóð á
bankahitamælinum að það væri 16 stiga hiti.
En skíðasvæðið skartaði sínu fegursta og ég náði
að smella af nokkrum myndum.










Athugasemdir