Sumarið búið ?
sksiglo.is | Almennt | 13.08.2010 | 11:34 | Bergþór Morthens | Lestrar 355 | Athugasemdir ( )
Starfsmenn bæjarins byrjuðu í morgun að taka niður sviðið við Ráðhústorg. Það er alltaf einn af vorboðunum á Siglufirði þegar að sviðið rís við torgið en að sama skapi þá markar það ákveðin lok sumars þegar sviðið hverfur á ný.
Þrátt fyrir smá rigningu í dag er ekkert haustveður í kortunum. Einmuna hlýindi hafa verið dag eftir dag og veðurútlitið er gott fyrir helgina.
Rigningin er góð fyrir gróðurinn og vatnsbúskapinn en það léttir sennilega til á morgun og gott veður í kortunum.
Sumarið er svo sannarlega ekki búið þó svo að sviðið sé að fara.

Athugasemdir