Sunnudagur til sælu
sksiglo.is | Almennt | 02.08.2010 | 02:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 763 | Athugasemdir ( )
Sunnudagurinn tók á móti íbúum Siglufjarðar og hátíðargestum með þoku en fljótlega náði sólin þó yfirhöndinni. Það sem eftir lifði dags var heiðskírt og rjómablíða. Fólk spókaði sig um í sólskininu og naut þeirra fjölmörgu viðburða sem í boði voru.
Tuttugasta síldarævintýrið hefur svo sannarlega tekist vel og mátti sjá það á andlitum fólks að það kunni vel að meta það sem í boði var.
Myndirnar tala sínu máli :

Síldarsmökkunin sló í gegn og gæddi fjöldi fólks sér á silfri hafsins.

Það var tekið hraustlega á því í kraftakeppni sem fór fram við Rauðkutorg.

Guðni Sveinsson sá til þess að kraftakeppnin færi fram eftir settum reglum.

Torgið iðaði af lífi.

Ungir og upprennandi söngvarar stigu á stokk og sungu af mikilli innlifun undir styrkri stjórn Elínar Jónsdóttur leikskólakennara.

Þessi glæsilegi bíll hefur lifað tímana tvenna en var aftur kominn í sitt gamla hlutverk og flutti síldartunnur.

Fjöldi fólks fylgdist með kraftakeppninni.

Hólshyrnan er alltaf tignarleg að sjá en hún tók sig einstaklega vel út í kvöldbirtunni.

Það er alltaf vinsælt að kasta grjóti í höfnina og gengu þessir hressu strákar vasklega fram.

Lögreglumennirnir voru hinir hressustu og afar ánægðir með helgina en engin alvarleg vandamál hafa komið upp. ,,Þetta er bara eins og þetta á að vera". Sagði einn þeirra og svo héldu þeir sem leið lá í áttina að torginu.

Hugrakka Brauðristin Max hélt uppi góðu stuði á Torginu áður þeir fluttu sig yfir í Allann þar sem fjörið hélt áfram fram á nótt.

Jói Abbýar skartaði glæsilegri svuntu sem er af Siglfirskum uppruna.

Erla Helga og Gulli Stebbi voru sælleg að sjá og kunnu vel að meta tónlistina frá Hugrökku Brauðristinni.

Þokubakkinn hélt sig fyrir utan fjörðinn í dag, hann var þó óneitanlega tilkomumikill að sjá í fjarska.

Athugasemdir