Sveitamarkaðurinn sló í gegn
sksiglo.is | Almennt | 05.09.2010 | 01:20 | Bergþór Morthens | Lestrar 642 | Athugasemdir ( )
Sveitamarkaðinn sem haldinn var á Steinaflötum í gær tókst svo sannarlega vel.
Mikill fjöldi gesta sótti veitamarkaðinn og áætla gestgjafar að um 150 - 200 manns hafi mætt.
Einmuna veðurblíða hefur verið á Siglufirði undanfarna daga og allt útlit fyrir áframhald á því.
Fjölmargir nýttu sér góða veðrið og komu margir gangandi á markaðinn og nutu dagsins í sveitasælunni á Steinaflötum.
Tekist hefur afar vel að gera upp húsið, jafnt að innan sem utan og var ekki annað að sjá á gestum að þeir kynnu vel að meta það sem í boði var.
Þarna mátti versla ýmiskonar varning auk þess sem boðið var upp á kaffi og kræsingar af ýmsu tagi.
Stemningin sem myndaðist var afar skemmtileg, gamaldags og svolítið sveitó- alveg eins og efni stóðu til.
Frábært framtak hjá öllum sem komu að þessu verkefni.

Stemningin á Steinaflötum var heimilsleg og notaleg, Daníel Pétur Daníelsson annar gestgjafanna spilaði nokkur vel valin lög fyrir gesti.
,,Krúttlegt og kósý". Þannig lýsti einn gesta sveitamarkaðarins stemningunni.

Athugasemdir