Bergþór og Paul verða með samsýningu í Bergi á Dalvík
sksiglo.is | Almennt | 06.07.2011 | 06:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 155 | Athugasemdir ( )
Föstudaginn
8. júlí opnar samsýning myndlistarmannanna Bergþórs Morthens og Paul
Lajeunesse í salnum í Bergi menningarhúsi kl. 17:00.
Bergþór Morthens (f. 1979) útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2004 og hefur síðan unnið ötullega að list sinni og haldið bæði einka- og samsýningar jafnt hér á landi sem erlendis.
Paul Lajeunesse (f. 1976) er bandarískur myndlistamaður sem dvaldi á Íslandi sem gestalistamaður SÍM og í Herhúsinu á Siglufirði árin 2007 til 2008. Á þeim tíma vann hann að verkum sem hann tók svo með sér aftur til Bandaríkjanna. Þar fullvann hann verkin og sýnir nú afraksturinn á Íslandi.
Þetta eru tveir myndlistamenn sem nálgast málverkið á mjög ólíkan hátt en tengjast samt að því leyti að þeir vinna á ákveðin hátt með sjálfsmyndir í verkum sínum.
Bergþór málar portrett myndir unnar með blandaðri tækni bæði á striga og plötur, verkin eru ákveðin alkemía þar sem hann blandar saman ólíkum efnum og verður útkoman oft óvænt. Paul Lajeunesse málar hinsvegar landslag á mjög fínlegan og realískan hátt.
Sýningin stendur til 27. júlí.
Texti: Bergþór Morthens
Mynd: GJS

Athugasemdir